Bygg
Bygg

Mannlíf

Blómamarkaður í blíðviðri
Laugardagur 31. maí 2008 kl. 23:51

Blómamarkaður í blíðviðri



Blómamarkaður Systrafélags Ytri-Njarðvíkurkirkju er nú starfræktur 27. árið í röð. Má með sanni segja að sumarið hafi verið alls ráðandi í dag þar sem viðskiptavinir skoðuðu sig um í úrvalinu á kirkjutröppunum.

Þessi markaður er aðalfjáröflunarleið félagsins sem styrkir viðhald og endurnýjun á húsbúnaði kirkjunnar.

Markaðurinnn verður að sjálfsöðu opinn á morgun sunnudag og er opnunartími frá 13-17.

Eins og undanfarin ár verður m.a. boðið upp á sumarblóm, rósir og runna auk þess sem að alltaf er heitt kaffi á könnunni.

VF-mynd/Þorgils - Frá markaðnum í dag

Bílakjarninn
Bílakjarninn