Blogg: Heimsótti náttúruperluna Hópsnesið
Grindvíkingurinn Bryndís Gunnlaugsdóttir heimsótti á dögunum náttúruperluna Hópsnesið. Bryndís sem er bæjarfulltrúi í Grindavík er ein af þeim bloggurum sem skrifa um það sem er að gerast á Reykjanesi en fyrr í sumar auglýsti Heklan eftir bloggurum sem hafa áhuga á því að kynna Reykjanes og það sem Suðurnesjamenn eru að gera í samfélagsmiðlum. Bryndís birti myndir og skemmtilegan texta um Hópsnesið sem sjá má hér.
Nokkrir hafa tekið við sér og eru farnir að blogga eða setja inn myndir af Reykjanesi. Miðlarnir sem hægt er nota eru fjölbreyttir s.s. tumblr, twitter, instagram, pinterest, flickr, youtube og vimeo. Hægt er að velja einn miðil eða fleiri.
Heklan hvetur enn fólk til að taka þátt eða benda fólki á það sem gæti verið góðir fulltrúar í að vekja athygli á svæðinu. Viðkomandi er bent á að senda inn umsókn á [email protected]. Þar þurfa að koma fram upplýsingar um viðkomandi, áhugasvið og skrifaður texti (300 orð lágmark) ásamt ljósmynd eftir höfund og slóð í samfélagsmiðlil ef við á.
Myndir frá Bryndísi.