Blaut busavígsla

Mynd: Þetta er BLAUTUR koss! Fleiri myndir hér að neðan.
Nýnemar og áhorfendur söfnuðust saman við skólann þar sem eldri nemar lásu yfir hausamótunum á þeim. Síðan var haldið af stað fótgangandi í lögreglufylgd um bæinn en þeirri göngu lauk við smábátahöfnina. Þar voru nýnemar vígðir inn í samfélag eldri nema. Eftir hamaganginn var boðið upp á pylsu og kók en busarnir þurftu að safna orku fyrir ball kvöldsins.