Bláa lónið: Menningarlegir miðvikudagar í maí
Maímánuður er á menningarlegum nótum í Bláa lóninu. Alla miðvikudaga í maí kl. 19.30 er menningarlegur viðburður á dagskrá fyrir baðgesti Bláa lónsins. Blúshljómsveitin Klassart stígur á stokk þann 14. maí en þá munu forsprakkar hljómsveitarinnar þau Smári og Fríða Dís Guðmundsbörn vera á rólegu nótunum og flytja vel valin lög sem slá vel í takt við umhverfi Bláa lónsins.
Miðvikudaginn 21. maí verður einstök stemning í Bláa lóninu þegar Gradualekór Langholtskirkju kemur fram en hann samanstendur af stúlkum á aldrinum 14-18 ára og hefur vakið mikla athygli fyrir einstaka túlkun á íslenskum verkum. Leikarinn Bergur Ingólfsson mun síðan slá botninn í menningarlegu dagskrána þann 28. maí með bráðskemmtilegri frumsamdri “bullu” sem hann ætlar að flytja bæði á íslensku og ensku.
Gert er ráð fyrir að öll dagskráin fari fram utandyra þar sem gestir geta fylgst með á meðan þeira slaka á ofan í lóninu.
Sunnudaginn 18. maí verður einnig helgaður listum og menningu þegar Íslenska vasafélagið verður með óvænta, gamansama og upplýsandi tónlistaruppákomu í Bláa lóninu sem fer umhverfis jörðina á 18 mínútum. Tónlistaruppákoman, sem markar endapunkt opnunarhelgar Listahátíðar í Reykjavík, byggir á íslensku þjóðlagi. Uppákoman hefst kl. 21.00 og af því tilefni verður Bláa lónið opið lengur þennan dag.
www.bluelagoon.is