Bláa lónið í beinni til Bandaríkjanna
Talið er að sjö milljónir Bandaríkjamanna hafi fylgst með beinni sjónvarpssendingu úr Bláa lóninu á þriðjudagsmorgun þegar risasjónvarpsstöðin NBC sendi beint frá Íslandi. Stöðin var með beina útsendingu frá Íslandi tvo daga í röð en einu sinni á ári er stöðin með risastóra útsendingu þar sem þessi vinsælasti morgunþáttur í bandarísku sjónvarpi, Today Show, er sendur út frá ýmsum heimshornum. Auk Íslands var stöðin í beinni frá Ástralíu, Belís og Kilimandjaro.
NBC var ekki í neinu krepputali frá Íslandi, heldur var það framsýni Íslendinga í orkumálum, endurnýjanlegir orkugjafar og hreinleiki vatnsins sem heillaði NBC. Þá var þáttastjórnandi þeirra, Al Roker, klæddur íslenska þjóðbúningnum, úlpu frá 66°N og með húfu merkta Íslandi. Hann er einn kunnasti veður-fréttamaður í Bandarísku sjónvarpi til 30 ára en er einnig öflugur þáttastjórnandi. Hann var í skýjunum með móttökurnar á Íslandi og langar að koma hingað aftur við tækifæri.
Sjá myndband í Vefsjónvarpi Víkurfrétta með viðtölum við Al Roker, Grím Sæmundsen og Hlyn Guðjónsson.