Aðventugarðurinn
Aðventugarðurinn

Mannlíf

  • Bláa Lónið gaf leirmunasafn
    Grímur Sæmundsen og Harpa Þórsdóttir.
  • Bláa Lónið gaf leirmunasafn
Föstudagur 5. maí 2017 kl. 11:49

Bláa Lónið gaf leirmunasafn

Um 1500 munir sem Hönnunarsafn Íslands mun varðveita

Nýverið færði Bláa Lónið Hönnunarsafni Íslands íslenskt leirmunasafn að gjöf. Leirmunasafnið samanstendur af fjölbreyttu úrvali muna eftir nánast alla íslenska og erlenda leirlistamenn sem starfað hafa hér á landi.

Safnið, sem var í eigu einkaaðila, telur um 1500 muni frá upphafi leirlistar og leirmunagerðar á Íslandi frá 4. áratug síðustu aldar til dagsins í dag. Á meðal munanna eru verk eftir Guðmund frá Miðdal og Listvinahúsið, Ragnar Kjartansson, Funa, Hauk Dór, Steinunni Marteinsdóttur, Koggu, Kristínu Ísleifsdóttur, Dieter Roth og fleiri listamenn. Óhætt er að segja að sögu íslenskrar leirlistar megi lesa í gegnum safnið.

Jólalukka VF 2024
Jólalukka VF 2024

Harpa Þórsdóttir, fyrrverandi forstöðumaður Hönnunarsafns Íslands, veitti leirlistasafninu móttöku fyrir hönd Hönnunarsafnsins og var það eitt af síðustu embættisverkum hennar áður en hún hóf störf sem safnstjóri Listasafns Íslands. „Framlag Bláa Lónsins markar Hönnunarsafninu sérstöðu meðal íslenskra safna á varðveislu íslenskra leirmuna og veitir Hönnunarsafninu tækifæri til að standa að rannsóknum og sýna íslenska leirmuni og leirlist með heildstæðum hætti,“ segir Harpa. Leirmunasafnið bætist við þá leirmuni sem safnið á nú þegar en viðbótin gerir leirmunasafnið að einu stærsta söfnunarsviðinu sem Hönnunarsafnið varðveitir í dag.

Bláa Lónið hefur alltaf lagt mikla áherslu á íslenska hönnun í starfsemi sinni. Grímur Sæmundsen, forstjóri Bláa Lónsins, segir að með því að færa safninu leirmunasafnið að gjöf vilji Bláa Lónið gera þennan þátt hönnunarsögunnar, sem er þýðingarmikill þáttur í menningararfi okkar Íslendinga, aðgengilegan. Þá vilji félagið einnig styðja almennt við starfsemi Hönnunarsafnsins með þessum hætti og þannig undirstrika mikilvægi íslenskrar hönnunar fyrir atvinnulífið.