Bláa lónið besti lúxus-spa staður Evrópu
- meðal staða sem byggja á jarðvarma.
World Luxury Spa Awards hefur veitt Bláa Lóninu viðurkenningu sem besti spa staður Evrópu í flokki lúxus spa staða sem byggja á jarðvarma.
Magnea Guðmundsdóttir, upplýsingafulltrúi Bláa Lónsins, segir verðlaunin vera mikla viðurkenningu fyrir Bláa Lónið og starfsfólk þess. „Við leggjum áherslu á þjónustu, gæði og upplifun gesta okkar sem er í samræmi við áherslur World Luxury Spa verðlaunanna. Það sem er einnig mikilvægt er að verðlaunin byggja á þátttöku einstaklinga sem hafa upplifað staðina og þekkja því þjónustu og gæði þeirra.“
Á heimasíðu Luxury Spa Awards kemur fram að sýn þeirra sem standa að verðlaununum sé að hvetja til og stuðla að háum viðmiðum þegar það kemur að þjónustu og gæðum spa staða. Markmið verðlaunanna er m.a. að veita spa gestum tækifæri til að taka þátt í að velja þá staði sem þeir telja vera á meðal þeirra bestu í heiminum.
World Luxury Spa verðlaunin vekja einnig athygli fagaðila og annarra þeirra sem sækja spa staði.