Karlakór Kef kertatónleikar
Karlakór Kef kertatónleikar

Mannlíf

Bjuggu til rúnir og þorramat í Akurskóla
Mánudagur 27. janúar 2014 kl. 09:45

Bjuggu til rúnir og þorramat í Akurskóla

Sameiginlegt þorraþema hefur staðið yfir hjá 1. bekk og skólahópum í Innri-Njarðvík.

Sameiginlegt þorraþema hefur staðið yfir hjá 1. bekk í Akurskóla í Reykjanesbæ og skólahópunum á leikskólunum Akri og Holti. Hópunum er blandað saman og nemendur vinna mörg skemmtileg verkefni tengd þorranum og gamla tímanum.

Þau búa til rúgbrauð, smjör og sviðasultu á Holti, spila þorrabingó, þæfa ull, lesa rúnir og fara í gamla leiki í Akurskóla og læra um krumma og föndra þorratrog á Akri. Einnig fara hóparnir í Víkingaheima og Stekkjarkot þar sem þau fara í leiki og heyra söguna um Gilitrutt. Þemadagarnir enduðu á þorrablóti á bóndadaginn. Þar var sungið og borðaður þorramatur, m.a. maturinn sem krakkarnir bjuggu til á Holti.

Jólalukka VF 2024
Jólalukka VF 2024

Meðfylgjandi myndir voru teknar þegar börnin föndruðu saman.