HSS
HSS

Mannlíf

Bjørg Lorentze Strømme sýnir á Ljósanótt
Föstudagur 31. ágúst 2007 kl. 13:51

Bjørg Lorentze Strømme sýnir á Ljósanótt

Bjørg Lorentze Strømme listakona frá Noregi mun sýna vatnslitaverk í HF húsinu á Listatorgi Hafnargötu 2 á Ljósanótt.  Bjørg hefur verið að mennta sig í myndlistinni í u.þ.b. 36 ár. Myndir hennar tjá hversdagsleikann eða hið hefbundna einfalda líf. Myndir hennar eru bæði abstrakt og náttúrulegar enda leikur efniviðurinn í höndunum hennar.

Bjørg hefur haldið fjölda  einkasýninga og tekið þátt í samsýningum. Um hana hefur verið skrifað í norskum fjölmiðlum og nýlega fékk hún styrk frá norska ríkinu fyrir framlag sitt til norskrar myndlistar.
Bjørg sýnir nú hér á Íslandi í fyrsta sinn akvarellu myndir ásamt dóttur sinni Maren Sofie sem sýnir akríl myndir og vinkonu Tone Nordahl-Pedersen sem sýnir glerverk.  Bjørg er tengd hingað til bæjarins því hún er gift Karvel Strömme sem ættaður er úr Njarðvík, en hann er systursonur Karvels Ögmunssonar heitins.

Ath! Fyrir mistök birtist röng mynd með þessari umfjöllun í Ljósanæturútgáfum VF. Er beðist innilega afsökunar á því.

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

Bílakjarninn
Bílakjarninn