Björgunarsveitin Þorbjörn hlýtur 1 milljón króna í styrk

Þorvaldur, sem er sonur Guðmundar Þorsteinssonar frá Hópi sem var formaður sveitarinnar hér á árum áður, sýnir hér í verki mikinn velvilja sem einkennt hefur fjöskyldu hans frá Hópi í Grindavík. Þorvaldur er gamall félagi í sveitinni og starfaði til margra ára í útkallshópi, lýsti hann einnig áhuga á því að koma aftur til starfa, fáir menn búa yfir jafn víðtækri þekkingu á landsvæði Grindavíkur og hefur Þorvaldur hug á að liðsinna bílaflokk að skrásetja alla þá vegslóða og staði sem auðveldað gætu aðkomu sveitarinnar að slystað.
Á aðalfundi sveitarinnar fór fram kjör til stjórnar, einnig björgunarbátasjóðs og unglingadeildarinnar Hafbjargar. Í skýrslu gjaldkera, Guðbjargar Eyjólfsdóttur, kom m.a. fram að mikill uppgangur hefði átt sér stað hjá sveitinni , ráðist var í endurnýjun í bílaflota og ýmis tæki og búnaður endurbættur. Umsvif í rekstri aukast ár frá ári og huga þyrfti að frekari fjáröflun, auk þess sem nýgerður samningur við Grindavíkurbæ rennir styrkari stoðum undir starfsemina.
Bogi Adolfsson formaður sveitarinnar var endurkjörinn, í ræðu hans kom fram að heildarfjöldi útkalla var 35 og æfingar voru samtals 18. Vel gekk að manna sveitina í útköllum og ljóst að hið öfluga unglingardeildarstarf er að skila góðu björgunarfólki.
Heiðar Hrafn Eiríksson flutti skýrslu björgunarbátasjóðs, þar kom fram m.a. að útköll á s.l ári voru 15 og 10 æfingar voru haldnar. Staða sjóðsins er geysisterk og er í bígerð að endurnýja Odd V. Gíslason með mun öflugra skipi. Undir liðnum önnur mál kom fram áhugi á að gefa út bók sem segir hina merku sögu björgunarsveitarinnar Þorbjörns í Grindavík.
Texti og mynd af grindavik.is: Bogi Adolfsson formaður og Þorvaldur Guðmundsson frá Hópi.