Aðventugarðurinn
Aðventugarðurinn

Mannlíf

Björg Örvar sýnir í Listasafni Reykjanesbæjar
Þriðjudagur 16. október 2007 kl. 15:49

Björg Örvar sýnir í Listasafni Reykjanesbæjar

Föstudaginn 19. október verður opnuð sýning á nýjum verkum Bjargar Örvar í Listasafni Reykjanesbæjar.

Björg Örvar útskrifaðist úr Myndlista- og handíðaskóla Íslands árið 1979 og stundaði síðan listnám við University of California á árunum 1981-1983. 

Björg hefur sýnt víða og er löngu orðin þekkt fyrir sérkennileg málverk sem erfitt er að skilgreina, en  hvort sem þau teljast náttúrumyndir eða ekki eru þau fyrst og fremst einstök. Í texta Halldóru K. Thoroddsen í sýningarskránni sem gefin er út af þessu tilefni segir m.a.:  “ Hér fer stríðinn málari.  Á þessari sýningu er mætt til leiks rauð agressjón.  Björg hefur fyrrum málað okkur græna mildi og blátt afskiptaleysi. Hvernig sem þessir litir kunna að hitta okkur fyrir eru þeir alltaf um það bil að bresta á límingunum en halda þó.”

Sýning Bjargar er í sýningarsal Listasal Listasafns Reykjanesbæjar í Duushúsum og  stendur til 2. desember.  Í Duushúsum er opið alla daga frá kl. 13.00-17.30 og aðgangur er ókeypis.
Jólalukka VF 2024
Jólalukka VF 2024