Bjartmar Hannesson: Sögur úr sveitinni

Allir textar og söngur á Sögur úr sveitinni eru í flutningi Bjartmars en Haukur leikur á gítar og syngur bakraddir. Sveitarómantíkin leynir sér ekki á hljómdisknum en sveitalífið er sett í gamansaman búning þar sem hver sagan úr sveitinni rekur aðra. Sem dæmi um gamansemi laganna á disknum má nefna Jóhannes Jóhannesson sem villist á heimleið eftir mannfögnuð í félagsheimilinu Þinghamri. Jóhannes þessi var viss um að vera kominn heim í kot og upp í rúm þegar hann áttaði sig á því að hann hafði hafnað uppi í rúmi hjá Manga félaga sínum.
„Yfirleitt sem ég textana í æðisgenginni tímaþröng fyrir þorrablót eða árshátíðir,“ sagði Bjartmar í samtali við Víkurfréttir en Bjartmar treður ósjaldan upp á þorrablótum og öðrum skemmtunum. Hvað varð til þess að Bjartmar ákvað að gefa út geisladisk? „Það var að áeggjan kunningja minna og það var af nógu að taka. Ég hef samið nær 500 gamanbragi og texta á s.l. 30 árum,“ sagði Bjartmar.
Sjónvarpsmaðurinn kunni Gísli Einarsson ritaði inngangsorðin að Sögur úr sveitinni og gefum við honum orðið: „Gerð hljóðdisks þessa fór þannig fram að í júnímánuði og aftur í október á þessu ári [2005] voru tveir síðmiðaldra karlar skammtímavistaðir á upptökuheimili í Reykjavíkurhreppi. Annars vegar skáldið sjálft og hinsvegar Haukur Ingibersson, sem oftar en ekki hefur lagt félaga sínum til þau gítargrip sem hann hefur ekki yfir að ráða sjálfur. Þeir Haukur og Bjartmar höfðu með sér samstarf um langt skeið sem meðal annars skilaði þjóðinni hinu ódauðlega „hæ, hó, jibbí jei, það er kominn sautjándi júní,“ og svo framvegis.
Sögur úr sveitinni hefur að geyma 23 skemmtileg lög, um útsetningu sáu Bjartmar og Haukur sjálfir um en upptaka, hljóðblödun og lokafrágangur var í höndum Vilhjálms Guðjónssonar sem lék á bassa á hljómdisknum. Vignir Bergmann á einnig nokkur lög á plötunni. Ljósmyndir og hönnun umslags voru í umsjá Þóru Geirlaugar Bjartmarsdóttur. Sögur úr sveitinni er hægt að panta í síma 435 1219 og er hann þá póstsendur um hæl.