HSS
HSS

Mannlíf

Bitnir af blóðsugum og bannað að broða meira en eitt kex!
Sunnudagur 20. júlí 2003 kl. 00:36

Bitnir af blóðsugum og bannað að broða meira en eitt kex!

Jæja, við erum mættir aftur. Þetta skiptið i Kathmandu. Síðasta vika fór mikið í skemmtileg veikindi, sólbruna, frunsur og aðra hluti sem gera lífið léttara en annars náðum við þó að gera okkur eitthvað til gamans. Byrjum á laugardeginum í síðustu viku. Smá Deja Vu frá því áður vegna þess að enn einu sinni var okkur sagt af Himalaya-partýi sem átti að vera í Pokhara. Í þetta sinn reyndust þó upplýsingarnar réttar og við á staðinn. Allt leit voða vel út þegar við komum a svæðið og ekki skemmdi að það kostaði bara skitnar 100 krónur að komast inn. Við komum frekar snemma og það var litið af fólki mætt. Svo byrjuðu menn að mæta og þá meinum við líka menn.Skiptingin var um 80% karlmenn og restin konur íi besta falli. Við gerðum þó gott úr þessu ollu saman og blönduðum bara geði við strákana. Þeir verða svo gríðarlega spenntir þegar Vesturlandabúar byrja að spjalla við sig. Þó fara samræðurnar aldrei út i neina dýpt, aðallega vegna tungumálaörðugleika. Við biðum eftir að sólin risi og vorum með síðustu mönnum heim í rúmið.

Lesa allan pistilinn frá Hemma og Magga
Bílakjarninn
Bílakjarninn