HSS
HSS

Mannlíf

Bítlabærinn stendur undir nafni
Laugardagur 17. desember 2011 kl. 11:47

Bítlabærinn stendur undir nafni

Í gæt var tilkynnt hverjir hljóta tilnefningar til íslensku tónlistarverðlaunanna árið 2011. Mugison fékk flestar tilnefningar, sex að tölu, en Suðurnesjamenn voru líka á meðal þeirra sem voru tilnefndir.

Í flokknum plata ársins eru bæði Hjálmar og Of Monsters And Men tilnefnd.

Lagahöfundur ársins gæti verið hljómsveitin Of Monsters And Men - „Fyrir sterka innkomu í íslenskt tónlistarlíf með fersku og grípandi þjóðlagapoppi á plötunni My Head Is An Animal,“ segir í tilkynningu.

Bæði Valdimar og Of Monsters And Men eru tilnefnd fyrir lag ársins, Valdimar fyrir Yfirgefinn og Of Monsters And Men fyrir smellinn Little talks.

Söngvararnir Sigurður Guðmundsson og Valdimar Guðmundsson eru tilnefndir sem söngvari ársins og segir m.a. um þá: Sigurður Guðmundsson - Fyrir frammistöðu sína á ýmsum hljómplötum og tónleikum í ár, m.a. fyrir tónleika með Sinfóníuhljómsveit Íslands ásamt Sigríði Thorlacius

Valdimar Guðmundsson - Fyrir sterka innkomu í tónlistarsenuna á árinu 2011. Hljómsveitin Valdimar hefur átt góðu ári að fagna, þá söng hann titillagið í Okkar eigin Osló og endar árið með útgáfu á plötunni Fjarlæg nálægð þar sem hann og Björgvin Ívar Baldursson vinna saman í fyrsta sinn.


Bílakjarninn
Bílakjarninn