Bindin fram í febrúar
1.febrúar hefst í annað sinn á Íslandi landsátakið Bindin fram í febrúar. Átakið er hvatning til allra til þess að nota bindi dagsdaglega í febrúarmánuði. Markmið átaksins er að auka fjölbreytta bindanotkun á Íslandi í leik og starfi og að vekja athygli á því að bindi er hægt að nota bæði hversdagslega og við hátíðleg tækifæri óháð kyni, aldri og starfi. Átakið stendur yfir allan febrúarmánuð og er hægt að fylgjast með átakinu á Facebook síðu þess, facebook.com/bindinfram.
Þrátt fyrir alda gamla hefð fyrir bindum hefur notkun þeirra farið sífellt minnkandi undanfarin ár og áratugi. Það vill gleymast að hálsbindi henta bæði karl- og kvenmönnum við allar aðstæður, hvort sem er í skóla, vinnu, félags- eða einkalífi. Þau eru til af öllum stærðum og gerðum, litum og munstrum og hægt að nota á marga mismunandi vegu. Hálsbindi eru góð leið til þess að sýna smekklegt útlit, tjá tilfinningar, lífsskoðanir, áhugamál, starfsvettvang, kynferði og framtíðarþrár. Hálsbindi má nota hvenær og hvar sem er sem og hvernig sem er.
Hægt er að fylgjast með framvindu átaksins á Facebook síuð átaksins: facebook.com/bindinfram. Það er hægt að skoða áhugaverð bindi, læra bindishnútagerð, læra um sögu binda, taka þátt í umræðu um bindi og senda inn bindamyndir.
Taktu þátt með okkur í landsátakinu með því að taka bindin fram úr skúffunni og setja þau upp í febrúar.