Bílabíó í vefsjónvarpi Víkurfrétta
Það er ekki laust við að nostalgían hafi svifið yfir vötnum á Keflavíkurflugvelli á miðvikudaginn. Þar komu hundruð manna saman til að njóta kvikmyndasýningar á annan hátt en hingað til hefur mátt venjast hér á landi, eða í bílabíó. Frétta- og kvikmyndatökumenn Víkurfrétta voru þar fyrir Ísland í dag á Stöð 2 en innslagið var sýnt í þættinum í kvöld. Fjörugt innslag um bílabíó á Keflavíkurflugvelli má einnig sjá í Vefsjónvarpi Víkurfrétta hér á vf.is
Fréttamaður: Þorgils Jónsson
Myndataka og klipping: Hilmar Bragi Bárðarson