Mannlíf

Betsý Ásta sigraði í Stóru upplestrarkeppninni
Sigurvegararnir í Stóru upplestrarkeppninni, f.v. Lovísa Grétarsdóttir Njarðvíkurskóla, 3. sæti, Betsý Ásta Stefánsdóttir Akurskóla, 1. sæti og Jón Arnar Birgisson Holtaskóla, 2. sæti.
Þriðjudagur 13. mars 2018 kl. 06:00

Betsý Ásta sigraði í Stóru upplestrarkeppninni

Betsý Ásta Stefánsdóttir nemandi í Akurskóla sigraði á lokahátíð Stóru upplestrarkeppninnar sem fram fór í Bergi Hljómahöll í lok febrúar. Í öðru sæti var Jón Arnar Birgisson nemandi í Holtaskóla og í þriðja sæti var Lovísa Grétarsdóttir nemandi í Njarðvíkurskóla

Stóra upplestrarkeppnin var nú haldin  í 21. sinn á Suðurnesjum. Að venju var hátíðin hin glæsilegasta. Í bland við fallegan upplestur var boðið upp á hugljúfa tóna frá nemendum í Tónlistarskóla Reykjanesbæjar. 

Bílakjarninn sumardekk 2024
Bílakjarninn sumardekk 2024

Alls 14 nemendur úr 7. bekk í grunnskólum Reykjanesbæjar og Sandgerðis tóku þátt í lokakeppninni. Fyrst lásu nemendur textabrot úr sögu eftir Sigrúnu Eldjárn og ljóð eftir Ólaf Jóhann Sigurðsson. Að lokum lásu nemendur ljóð að eigin vali. Í dagskrálok flutti Helgi Arnarson sviðsstjóri ávarp og veitti öllum þátttakendum bókagjafir.