HSS
HSS

Mannlíf

Besti árangur í samræmdu prófunum frá upphafi
Föstudagur 1. nóvember 2013 kl. 13:28

Besti árangur í samræmdu prófunum frá upphafi

Besti árangur frá upphafi mældist úr samræmdum prófum í 10. bekk í Reykjanesbæ, Garði og Sandgerði. Að sögn Gylfa Jóns Gylfasonar, fræðslustjóra Reykjanesbæjar, hafa miklar framfarir orðið í íslensku, stærðfræði og ensku í þessum árgangi.Hann segir meðaltalsárangur nemenda í bæjarfélögum þremur nú vera við landsmeðaltal í stærðfræði og ensku í fyrsta skipti frá upphafi samræmdra prófa. Þá hafi framfarir einnig orðið í íslensku.

Gylfi Jón segir marga samverkandi þætti skýra þennan góða árangur. Kennarar stýri framförum og skili greinilega afburðavinnu. Þeir hafi einnig komið á góðu samstarfi við foreldra og nemendur séu áhugasamir og metnaðarfullir. Einnig sé góður stuðningur frá sérfræðiþjónustu skóla og samstarf milli skóla hafi aldrei verið meira en nú. Þá skipti skýr, samræmd aðferðafræði og stefnumótun einnig máli. „Skólasamfélagið hefur sett sér það markmið að nemendur okkar útskrifist úr grunnskóla með góða grunnfærni sem gefi þeim tækifæri til afla sér góðrar framhaldsmenntunar. Það markmið er nú að nást,“ segir Gylfi Jón.

Bílakjarninn
Bílakjarninn