Mannlíf

Besta forvörnin er að hafa trú á eigin getu
Sunnudagur 24. september 2017 kl. 07:00

Besta forvörnin er að hafa trú á eigin getu

Harpa Rakel Hallgrímsdóttir er jógakennari og búsett í Grindavík. Að eigin sögn ætlaði hún aldrei að kenna jóga, hvað þá stunda það þar sem henni fannst hún ekki hafa eirð í sér til að njóta þess að vera í núinu. Draumur Hörpu er að opna jógasetur og mun það gerast þegar það á að gerast. Í haust ætlar Harpa hins vegar að leyfa sér að njóta og rækta líkama og sál.

Hvenær byrjaðir þú að stunda jóga og hvenær ákvaðst þú að gerast jógakennari?
„Áður en ég byrjaði að stunda jóga hafði ég prófað einn og einn tíma. Mér fannst það spennandi en samt ekki fyrir mig, mér fannst ég ekki hafa þessa eirð í mér. Ég byrjaði að stunda jóga af alvöru í byrjun árs 2014 að mig minnir. Það var eiginlega bara tilviljun því ég var að skúra leikskólann og þar var lokaður jóga hópur og á meðan þær stunduðu skrapp ég heim. Halldóra Halldórs jógakennari var alltaf að benda mér á að prófa í stað þess að hoppa heim á meðan. Þannig ég prófaði og bæði ég og Halldóra getum sagt að ég hafi ekkert slakað á, ekki í eina sekúndu. Erfiðasta æfingin var slökunin þar sem ég var búin að telja allar línur og skrúfur í loftinu. En eftir tímann vissi ég að þetta væri eitthvað sem ég þyrfti þannig ég ákvað að mæta aftur og hef aldrei séð eftir því.

Bílakjarninn sumardekk 2024
Bílakjarninn sumardekk 2024

Ég fór svo í fyrsta jóganámið sumarið eftir það en það skondna var að ég ætlaði aldrei að kenna. Ég hafði prófað Aerial jóga í Reykjavík og orðið ástfangin af því en ég var mjög feimin, kvíðin og hrædd við að vera með of miklu fólki og var alltaf í hræðslukasti fyrir utan áður en ég fór í tíma. Ég keypti mér því sjálf Aerial búnað og fór í námið til þess eins að þurfa ekki að mæta aftur heldur ætlaði ég bara að stunda það ein heima í friði. Eftir námið plataði kennarinn sem átti Byoga, þar sem ég stundaði námið mig í að vera með námskeið og þá var ekki aftur snúið.“

Prana jógasetur, hvaðan kemur hugmyndin af því?
„Ég get ekki sagt að ég eigi hugmyndina alveg sjálf. Ég og Margrét Kristín, sem er annar jógakennari hér í Grindavík, keyrðum eitthvern tímann á milli í jóga og töluðum um hvað það þyrfti jógasetur í Grindavík og þá keyrir bíll fram hjá með merkinu Prana og við litum á það sem tákn að ef við myndum stofna jógasetur myndi það vera nafnið. Prana er úr jógafræðunum og er lífsorkan okkar.“

Stefnir þú enn að því að opna jógasetur í Grindavík?
„Já klárlega, en plönin hafa örlítið breyst því á lóðinni sem ég keypti má ég ekki byggja íbúðarhús. Planið var að byggja saman íbúð og jógasetur því fáir í þessu samfélagi hafa efni á tveimur íbúðum, ég ætlaði að búa í annarri íbúðinni og hafa jógasetur í hinni. Núna er lóðin farin á sölu og ég finn nýja leið. Ég trúi því að þegar það eigi að koma og tíminn er réttur þá komi það. Allt er eins og það á að vera. Þangað til hef ég tekið allt úr stofunni heima hjá mér og gerði lítið pláss fyrir um átta manns þar sem ég og aðrir getum haldið áfram stunda jóga, þroskast og vaxa saman.“

Þú ert með Aerial jóga fyrir unglinga. Er ekki gott fyrir þá að komast í jóga og gleyma aðeins stund og stað í hraða samfélagsins í dag?
„Alveg nauðsynlegt. Það er endalaust áreiti á unga fólkið í dag og margar freistingar sem kalla. Börn og unglingar þurfa að læra að það sé í lagi að vera maður sjálfur, að tilfinningar séu eitthvað sem allir upplifa og að það sé í lagi að finna til. Ég tel að ein besta forvörn fyrir börn og unglinga sé trú á eigin getu og samskiptahæfni sem gott er að styrkja í nánum hóp eins og jóga. Þar finna þau tæki og tól til að komast í gegnum þær reynslur sem munu móta líf þeirra. Það er líka alltaf nóg að gera og mikið álag á þeim svo það er yndislegt að gefa sér smá tíma og sleppa því að hugsa um hvað þau þurfi að gera og vera bara í núinu að njóta.“

Þú hefur einnig verið með jóga fyrir börn á leikskólaaldri. Er ekki skemmtilegt að kenna svona ungum einstaklingum?
„Ég elska að vera með þennan hóp. Það er aldrei hægt að vita hvernig tíminn fer. Til að byrja með var ég með jógastundirnar skipulagðar fá a-ö og barði mig niður fyrir að ná ekki að fylgja því eftir en núna er planið síbreytilegt. Það er svo misjafnt hvað hentar hverjum hóp og hvernig þau mæta. Eina sem er alltaf fast er öndun í byrjun og slökun í lokin. Börn elska slökunina, en fyrir okkur eldri er oft erfitt að tileinka sér slökun þar sem við fáum samviskubit yfir því að eyða tíma í ekki neitt og hugsum um allt sem við eigum eftir að gera. Börn fæðast með hæfileikann að vera í núinu en við fullorðna fólkið erum alltaf að kippa þeim frá því og því eiga þau til að gleyma hvernig það er. Þess vegna er svo mikilvægt að byrja ung að stunda jóga og núvitund til að viðhalda því sem er börnunum eðlislægt.“

Geta allir stundað jóga?
„Ekki spurning. Jóga er fyrir alla. Konur, karlar, krakkar, ung börn, unglingar og aldraðir geta fundið tíma við sitt hæfi. Jóga snýst ekki um að vera góður í jóga eða keppa um að geta farið í erfiðar stöður. Margir halda að þeir verði að vera í góðu formi líkamlega og andlega þannig að þeir geti róað hugann og haldið honum rólegum í langan tíma en aðalatriðið er að mæta, njóta og koma fram við sig af vinsemd og án dómhörku þrátt fyrir að hugurinn fari á flakk því hann gerir það hjá öllum. Í jóga og núvitund æfum við okkur að staldra við, auka meðvitund okkar og horfa á okkur sjálf og heiminn án dómhörku.“

Hvað er á döfinni hjá þér á næstunni?
„Það er sitt lítið af hverju. Það er nóg að gera en ég er með fjóra jógatíma á viku heima í stofu eins og er og svo mun ég hjálpa til við að efla núvitund í skólasamfélaginu í Grindavík ásamt Halldóru Halldórsdóttur. Einnig var ég að hefja nám í heilsunuddi og þrái að tvinna þetta saman í framtíðinni. Annars er markmiðið í haust aðalega að leyfa mér að njóta og rækta líkama og sál. Ég get ekki gefið af mér ef ég sinni mér ekki. Við þurfum alltaf að byrja á okkur sjálfum, eins í neyðarástandi í flugvélum, fyrst setjum við grímuna á okkur sjálf, svo á aðra. Þannig núna er tími til að læra að lifa við breyttar aðstæður og rækta fjölskyldu- og vinasambönd.“