Karlakór Kef kertatónleikar
Karlakór Kef kertatónleikar

Mannlíf

Bernska og æska í Sandgerði upp úr miðri síðustu öld rædd á sagnastund á Garðskaga
Frá sagnastund á Garðskaga á síðasta vetri. VF/Hilmar Bragi
Miðvikudagur 20. september 2023 kl. 14:56

Bernska og æska í Sandgerði upp úr miðri síðustu öld rædd á sagnastund á Garðskaga

– Sagnastund á Garðskaga laugardaginn 23. september kl. 15:00

Á komandi vetri eru áform um að halda áfram með sagnastund á Garðskaga. Laugardaginn 23. september kl. 15:00 verður sagnastund á veitingastaðnum Röstinni sem er á hæðinni ofan við Byggðasafnið á Garðskaga.

Þangað koma þrír valdir heiðursmenn og segja sögur frá uppvaxtarárum sínum í Sandgerði. Þeir eru Guðmundur Jóelsson, Einar Arason og Júlíus Jónsson.

Á þessum árum var mikið um að vera í Sandgerði. Heimabátar og aðkomubátar lönduðu afla sínum við bryggjurnar, fiskvinnsla innan dyra og utan, aðkomufólk í vinnu með heimafólki. Frelsi hjá börnum og unglingum sem voru virkir þátttakendur í atvinnulífinu og höfðu frelsi til útileikja og íþrótta.

Kraftmikið mannlíf og öflugt atvinnulíf og samfélag. Athafnasöm ungmenni eiga minningar sem allt er í lagi með að greina frá áratugum síðar.

Allir velkomnir á Garðskaga, ekki aðgangsgjald, veitingahúsið og byggðasafnið verða opin.

Áhugamenn um sagnastund á Garðskaga.

Jólalukka VF 2024
Jólalukka VF 2024