Bragi Guðmundsson - Báruklöpp
Bragi Guðmundsson - Báruklöpp

Mannlíf

Bergrisinn rís í Reykjanesbæ
Föstudagur 23. ágúst 2013 kl. 10:28

Bergrisinn rís í Reykjanesbæ

Hagleiks- og listamaðurinn Jón Adolf Steinólfsson er byrjaður að saga bergrisann, einn landvætanna, út úr klettagrjóti frá Helguvík. Hér er kominn einn af fjórum landvættunum, sá er óð út í sjóinn sunnan við land.

Á svæði Víkingaheima mun 8 metra bergrisi, líkt og í skjaldarmerkinu, trjóna á útnesinu í Njarðvíkinni við sýningarhús víkingaskipsins Íslendings. Hinar landvættirnar voru griðungur, gammur og dreki.

Bílakjarninn frá sept. 25
Bílakjarninn frá sept. 25

Hugmyndin um landvættirnar fjórar á sér fyrirmynd í kerúbum sem Gyðingar hugsuðu sér að héldu vörð um guð. Í kristnum sið urðu þessi andlit tákn guðspjallamannanna fjögurra.

Hér er Jón Adolf byrjaður að móta höfuð risans nærri uppsetningarstað við Víkingaheima. 

Safnahelgi 2025
Safnahelgi 2025