Aðventugarðurinn
Aðventugarðurinn

Mannlíf

Bekkjarsystur með árlegt matarboð
Æskuvinkonur og bekkjarsystur saman í jólaboði fyrr í desember. Bergný er aftast til vinstri á myndinni.
Fimmtudagur 19. desember 2019 kl. 07:55

Bekkjarsystur með árlegt matarboð

„Við erum nú ekki mjög gamlar æskuvinkonurnar og bekkjarsystur úr Sandgerðiskóla, rétt að verða 45 ára, en við erum enn allar saman í saumaklúbb sem heitir Æskurnar mínar úr Sandgerði. Föstudaginn 6. desember er árlegt jólamatarboð okkar, pakkar, hlátur og gaman. Það skemmtilega við þetta er að við erum allar bekkjarsystur í þessum hópi, sumar koma oft og alltaf, en aðrar ekki eins oft. Ein býr til dæmis í útlöndum og nær lítið að koma og vera með okkur. Við hittumst alltaf nokkrum sinnum á ári og núna hefur skapast sú hefð að fara annað hvert ár til útlanda. Þegar við hittumst núna 6. desember má gera ráð fyrir að næsta ferð til útlanda verði plönuð. Á síðasta ári fórum við fimmtán saman til Edinborgar,“ segir Bergný Jóna Sævarsdóttir, aðstoðar bæjarstjóri Suðurnesjabæjar sem deildi þessari jólahefð með lesendum Víkurfrétta.

Jólalukka VF 2024
Jólalukka VF 2024