Bátasagnfræði á Bryggjunni í kvöld
Grímur Karlsson, fyrrum skipstjóri, er maður fróður um útgerðarsöguna og þekktur af mikilvirkri smíði sinni á bátalíkönum. Hann verður gestur Bryggjunnar í Grindavík í kvöld þar sem hann heldur fyrirlestur um báta, útgerðarsögu, skipstjóra- og sjómannasögu.
Grímur var skipstjóri á Hamravíkinni og Bergvíkinni en báðir þessir bátar voru úr Keflavík. Hann er ákaflega fróður um íslenska útgerðarsögu og hefur smíðað líkön af flestum fiskibátum sem sigldu undir íslenskum fána á síðustu öld. Þau eru mörg til sýnis í Byggðasafni Keflavíkur í Duushúsum.
Söngtríóið Sárabót syngur nokkur lög og Ólafur Þórarinsson mun leika á harmonikku. Dagkráin hefst kl. 20:30 en hún er hluti af Menningarviku Grindavíkur sem nú stendur yfir.
Á meðal annarra dagskrárliða í dag má nefna bútasaum í Flagghúsinu frá kl. 13, tónleika í Víðihlíð kl. 14 þar sem Friðarliljurnar skemmta og frumsýningu á leikriti grunnskólans kl. 15:30.
---
VFmynd/Þorgils - Grímur Karlsson við eitt þeirra fjölmörgu bátalíkana sem hann hefur smíðað.