Sjómannakveðjur 1
Sjómannakveðjur 1

Mannlíf

Basar í Ragnarsseli 8. desember
Þriðjudagur 4. desember 2007 kl. 14:36

Basar í Ragnarsseli 8. desember

Árlegur Alþjóðadagur fatlaðra er haldinn 3. desember ár hvert til að ýta undir þekkingu og skilning á málefnum fatlaðra og kalla fram stuðning við virðingu, réttindi, jafnræði og velferð fatlaðra. Af  því tilefni vill foreldrafélag Ragnarssels bjóða gestum að koma á  basar í Ragnarsseli, þar sem félaginu áskotnaðist að gjöf ýmsar vörur sem ætlunin er að koma í sölu. Allur ágóði af basarnum mun renna óskiptur til leikfangakaupa fyrir börnin í Ragnarsseli.

 

Ragnarssel (staðsett við Suðurvelli í Reykjanesbæ rétt hjá Kaskó) er dagþjónusta fyrir fötluð börn og þangað fara börnin þegar skóla lýkur á daginn. Á hverjum degi verja þau tíma í frjálsum leik og læra þannig samkipti og ýmis konar færni. Þar sem fatlanir þeirra eru mjög fjölbreytilegar og einstaklingarnir jafn misjafnir og þeir eru margir, þá þarf fjölbreytt úrval leikfanga til að höfða til hvers og eins. Því leitum við til ykkar kæru samferðarmenn að styrkja góðan málstað og e.t.v. finnið þið hina fullkomnu jólagjöf í leiðinni.

 

Mynd: Frá starfinu á Ragnarsseli.

Bílakjarninn
Bílakjarninn