Barnaópera um norðurljósin í Hljómahöll í dag
Alexandra Chernyshova sýnir í dag, þriðjudag kl. 17 í Hljómahöllinni, barnaóperu sem var frumsýnd núna um helgina á Barnahátíðinni í Reykjavík. Barnaóperan heitir „Ævintýrið um norðurljósin“ og er skemmtilegt sýning fyrir alla í bland við sögu, tónlist og leik.
Barnaóperan er byggð á sögu eftir Evgeniu Chernyshovu um ást tröllastelpu og álfadreng, íkornann Ratatoski, álfadrottninguna, íbúa heimanna níu og fleiri. „Þeirra ást bjó til norðurljósin sem við dáumst að á hverjum vetri á Íslandi,“ segir í umsögn um sýninguna. Leikgerðin er Guðrúnar Ásmundsdóttir og tónlist eftir Alexöndru Chernyshovu.
Flytjendur:
Sögumaður og leikstjóri: Guðrún Ásmundsdóttir, leikkona Triesta og Amma - Margrét Einarsdóttir, sópran Grimli og Njörður - Egill Árni Pálsson, tenoó Álfadrottning - Alexandra Chernyshova, sópran Ratatoski - Tamara Shulmina Birgisdóttir, dansari Barnabörn - Alexander Logi og Nikolai Leo Jónssyni Julian Hewlett - píanóleikari
Sýning fyrir börn og fullorðna.
Viðburðurinn stendur í eina klukkustund og hefst kl. 17:00.
Miðarverð er 1900 kr, frítt er fyrir 16 ára og yngri.