Bygg
Bygg

Mannlíf

Barnahátíð í Reykjanesbæ dagana 21. til 25. apríl
Fimmtudagur 15. apríl 2010 kl. 10:20

Barnahátíð í Reykjanesbæ dagana 21. til 25. apríl

Barnahátíð í Reykjanesbæ verður haldin í 5. sinn 21. – 25. apríl nk. með skemmtilegri og skapandi dagskrá fyrir alla fjölskylduna í tilefni vorkomu.


Hátíðin verður sett formlega miðvikudaginn 21. apríl með setningu listahátíðar barna í Duushúsum þar sem bréfdúfum verður sleppt með boð á hátíðina til allra barna á landinu.

Bílakjarninn
Bílakjarninn


Að hátíðinni koma fjöldi tómstundafélaga, íþróttafélög, leik- og grunnskólar og menningarhópar og er frítt á flesta viðburði fyrir börn í fylgd með fullorðnum. Veitingahús og fyrirtæki verða með ýmis tilboð í tilefni barnahátíðarinnar og ýmsar veitingar í boði þar sem dagskráratriði fara fram. Skessan í hellinum er komin í hátíðarskap og ætlar hún að bjóða gestum upp á lummur eins og hennar er siður og heyrst hefur að Fjóla vinkona skessunnar muni líta við.

Á sama tíma verður opinn dagur á Ásbrú fimmtudaginn 22. apríl þar sem boðið verður upp á fjölbreytta dagskrá auk viðburða á barnahátíð. Má þar helst nefna Risakarnival í kvikmyndaveri Atlantic Studios þar sem rifjuð verður upp skemmtileg karnivalstemmning sem flestir heimamenn þekkja frá veru varnarliðsins.

Meðal viðburða á barnahátíð má nefna listahátíð barna, listasmiðjur, ljósmyndasýningu, hreystikeppni á nýju hreystibrautinni við Vatnaveröld, dorgkeppni, hlaupakeppni, fjölskylduratleik, hestahátíð og sjóræningjaleik í Vatnaveröld og kálfa, lömb og kiðlinga í Víkingaheimum sem verða á nýrri dýrasýningu þar í sumar. Í Víkingaheimum verður sprell og fjör á fimmtudag og laugardag þar sem hægt verður að taka þátt í víkingaleik og taka þátt í lifandi barnaskemmtun um borð í víkingaskipinu Íslendingi. Svabbi sjóari fræðir börnin um íslensk vatnaskrímsli en á bryggjunni neðan Duushúsa verður hægt að skoða hin ýmsu sjávardýr í tilefni af þema listahátíðar sem í ár er hafið.

Flestir viðburðir eru heimagerðir og má þar nefna sýningu grunnskólabarna í Stapa þar sem sýnt verður brot af því besta frá árshátíðum skólanna. Einnig munu börn í leikskólanum Akri og Holti taka þátt í að vígja ný fuglahús við tjarnirnar í Innri Njarðvík en gerð þeirra er framhald af íbúafundum bæjarstjóra sem haldnir voru með grunnskólanemum sl. haust en þar var óskað eftir hugmyndum að útfærslum að fuglahúsum.


Allir sem taka þátt í skipulögðum leikjum á barnahátíðinni fá veglegan þátttökupening. Íbúar eru hvattir til þess að kynna sér dagskrá hátíðarinnar á vefnum barnahatid.is en þar eru viðburðir merktir inn á kort og hægt að hlaða dagskránni í símann.