Aðventugarðurinn
Aðventugarðurinn

Mannlíf

  • Barnadagskráin í öndvegi
  • Barnadagskráin í öndvegi
Fimmtudagur 19. maí 2016 kl. 13:41

Barnadagskráin í öndvegi

– á 20 ára afmæli Sjóarans síkáta

„Bæjarhátíð okkar Grindvíkinga, Sjóarinn síkáti, fagnar 20 ára afmæli í ár. Þá vill svo skemmtilega til að Sjómanna- og vélstjórafélag Grindavíkur heldur upp á 60 ára afmæli í ár þannig að það er tvöföld ástæða til að hafa halda upp á Sjómannadagshelgina í Grindavík með pompi og pragt í ár,“ segir Þorsteinn Gunnarsson, sviðsstjóri frístunda- og menningarsviðs en Sjóarinn síkáti fer fram helgina 3.-5. júní nk.

Undirbúningur hefur staðið yfir frá því í ársbyrjun og verður mikið lagt í hana í ár. Að sögn Þorsteins verður hún í öndvegi en búið er ráða m.a. Villa og Góa, Gunna og Felix, Einar Mikael, íþróttaálfinn, Sollu stirðu, Sigga sæta, Gogga Mega, Sirkus Ísland, Pílu pínu, brúðubílinn o.fl. Þá verða leiktæki og hoppukastalar alla helgina, paintball og lazertag, vatnaboltar, gokart, dorgveiðikeppni, skemmtisigling, sjópulsa í höfninni, krakkakeyrsla á mótorhjólum, andlitsmálning, svo eitthvað sé nefnt.

„Einnig verðum við með fiskasafn með lifandi sjávardýrum í fiskabúrum á bryggjunni á sunnudeginum en þetta er samstarfsverkefni Sjóarans síkáta, Hafró í Grindavík og sjávarúvegsfyrirtækjana í Grindavík. Við gerðum þetta í fyrsta skipti í fyrra og sló algjörlega í gegnum. Við bætum við í ár. Einnig hafa frystitogarar Þorbjarnar safnað saman ýmsum furðufiskum og verða þeir til sýnis fyrir gesti og gangandi. Við erum með sullubúr fyrir krakkana þar sem þau geta komist í tæri við krabba, skeljar og minni fisktegundir,“ segir Þorsteinn.

Óhætt er að segja að landslið skemmtikrafta verði á Sjóaranum síkáta í ár. Á meðal þeirra sem búið er að bóka á Sjóarann síkáta er Páll Óskar sem kemur fram bæði á Bryggjuballi og verður með Palla-ball í íþróttahúsinu. Bræðurnir Jón og Friðrik Dór Jónssynir munu skemmta saman ásamt hljómsveit á bryggjuballinum ásamt heimamanninum Ellert Heiðari Jóhannssyni sem sló í gegn í The Voice treður upp ásamt hljómsveit sinni. Ingó Veðurguð sér um brekkusöng eins og honum einum er lagið.

Þá mun hópur tónlistarfólks í Grindavík standa fyrir klassískri rokkhátíð í íþróttahúsinu. Alls koma fram 15 flytjendur, sem flestir búa í, hafa búið í eða tengjast Grindavík á einhvern hátt. Þetta fólk kemur úr ólíkum áttum en á það sameiginlegt að njóta þess að flytja frábæra tónlist. Hópurinn ætlar að flytja framsækið rokk (e. Progressive Rock), sem átti sitt blómaskeið á áttunda áratugnum. Flutt verða lög eftir hljómsveitir á borð við Pink Floyd, Marillion, Yes og Queen, í bland við nýrra efni.

Björgunarsveitin Þorbjörn kemur að skipulagningu og gæslu á hátíðinni með öflugum hætti að vanda. Hátíðin hefur vaxið með hverju árinu, þar er fjölbreytt dagskrá alla helgina en mikið er lagt upp úr vandaðri barnadagskrá. Um 25 þúsund gestir voru á hátíðinni í fyrra.

Jólalukka VF 2024
Jólalukka VF 2024