Barna- og fjölskylduskemmtun á Ljósanótt
Eitthvað fyrir alla
Fjölbreytt barna- og fjölskyldudagskrá er í boði á Ljósanótt í ár. Ofurhetjur, ávextir og eldlistir eru meðal annars á dagskrá fyrir börn og ungmenni bæjarins. Hér að neðan má finna allar helstu upplýsingar um viðburði fyrir fjölskylduna á Ljósanótt.
Hæfileikakeppni Ljósanætur er nýr viðburður haldinn af Reykjanesbæ fyrir börn í 3.10. bekk í grunnskólum bæjarins. Forkeppni fer fram dagana 30. og 31. ágúst í Frumleikhúsinu, hluti þátttakenda fer svo áfram í úrslit sem fara fram á Tjarnargötusviðinu föstudaginn 2. september. Keppnin verður skemmtileg skemmtun fyrir bæjarbúa og eru allir hvattir að mæta og styðja hæfileikaríka þátttakendur. Sigurvegari keppninnar fær tækifæri til að flytja atriðið sitt á stóra sviði Ljósanætur á laugardeginum 3. september.
Vatnaboltar og teygjuhopp frá Kastalar verða í boði við DUUS safnahús dagana 1.- 3. september fyrir þá sem vilja sýna kúnstir sínar eða ganga á vatni. Frekari upplýsingar um viðburðinn má sjá á kastalar.is.
Taylors Tivoli verður á sínum stað dagana 1.- 4. september á Duusgötu með tæki sem henta fólki á öllum aldri. Á fimmtudeginum verða tækin opin frá 16:00 til 23:00, á föstudeginum frá 16:00 til 23:00 og á laugardeginum og sunnudeginum milli 13:00 og 23:00. Miðasala verður opin á miðvikudeginum 31. ágúst milli 10 og 12 þar sem hægt verður að kaupa miða á afslætti.
Sýningin Ofurhetjur fara sínar eigin leiðir verður í Bókasafni Reykjanesbæjar fimmtudaginn 1. september klukkan 17:00 og er aðgangur ókeypis. Á sýningunni verða ofurhetjur í brennidepli og verður hægt að skoða muni, bækur og blöð sem tengjast ofurhetjuheiminum. Þá eru gestir hvattir til þess að mæta í ofurhetjubúningum.
Ávaxtakarfan slær alltaf í gegn hjá yngstu kynslóðinni. Þær Gedda gulrót og Rauða eplið munu vera í Hljómahöll laugardaginn 3. september milli klukkan 10:30 og 11:15 og segja frá ævintýrum Ávaxtakörfunnar ásamt því að syngja og skemmta gestum.
Hestateyming verður í boði fyrir alla krakka á túninu fyrir aftan Svarta- pakkhúsið á laugardaginn frá klukkan 14:30 til 17:00.
Dorgveiðikeppni fyrir börn 12 ára og yngri verður haldin fimmtudaginn 1. september klukkan 17:00 til 18:30 á bryggjunni við Keflavíkurhöfn. Verðlaun verða veitt fyrir þyngsta, furðulegasta og minnsta fiskinn. Börn mæta með sín eigin veiðarfæri og eru á ábyrgð forráðamanna sinna.
Blaðrarinn mun mæta í bröns á Hótel Keflavík á laugardeginum 3. september klukkan 12:00 og búa til skemmtileg blöðrudýr fyrir gesti og gangandi.
Sirkus Ananas mun leika listir sínar á Keflavíkurtúni, við Gömlu búð og Duus Safnahús, laugardaginn 3. september frá klukkan 16:00 til 16:30.
BMX brós verða með sýningu fyrir gesti og gangandi við Ægisgötu, laugardaginn 3. september klukkan 16:30. Einnig gefst öllum tækifæri til að taka þátt og sýna listir sínar á þrautabrautinni þeirra á sínum eigin hjólum.
Veltibíllinn verður við Hafnargötu 12, laugardaginn 3. september milli klukkan 14:30 og 17:00.
Húllafjör verður á Keflavíkurtúni við Gömlu búð og Duus hús á laugardeginum 3. september frá klukkan 14:30 til 16:30. Húlladúllan sýnir listir sínar og býður öllum húllurum sem vilja að prófa að húlla.
Eldlistir verða sýndar við Svarta Pakkhúsið á laugardeginum 3. september klukkan 21:00. Húlladúllan sýnir listir sínar og stendur sýningin yfir í hálftíma.
Ljósanæturball fyrir 8.- 10. bekk verður miðvikudaginn 31. ágúst í Hljómahöll. Fram koma DJ Rikki G, Inspector Spacetime og Aron Can. Ballið er á vegum Fjörheima félagsmiðstöðvar, frekari upplýsingar má nálgast á miðlum félagsmiðstöðvarinnar.
Andlitsmálning verður í boði í portinu á milli Svarta Pakkhússins og Fishershúss milli klukkan 14:30 og 16:30 laugardaginn 3. september.
Lalli töframaður kemur fram á Götupartýssviði við Tjarnargötu laugardaginn 3. september klukkan 14:30.
Kjötsúpa verður í boði fyrir alla við götupartýsviðið eða á mótum Hafnargötu og Tjarnargötu á föstudeginum 2. september milli 18:00 og 20:00. Ljúffeng kjötsúpa fyrir alla fjölskylduna í boði Skólamatar.
Húllahringjagerð er skemmtileg smiðja þar sem þátttakendur eignast og skreyta sinn eigin húllahring undir handleiðslu Húlladúllunnar. Smiðjan fer fram sunnudaginn 4. september klukkan 14:00 á efri hæð Reykjaneshallar og er efniskostnaður 2500 krónur.
Fimleikafjör í Íþróttaakademíunni verður í boði fyrir hressa krakka á sunnudeginum 4. september. Um er að ræða opið hús og kostar aðgangur 1000 kr. fyrir hvert barn. Þau börn sem eru fædd 2015 og fyrr eru velkomin milli klukkan 13:00 og 14:00 og börn fædd 2016 og síðar milli klukkan 14:30 og 15:30.
Nánari upplýsingar um hvern viðburð má finna á heimasíðu Ljósanætur: https://www.ljosanott.is/