Bam Margera staddur í Keflavík
Það eru fleiri stjörnur á ferð um Ísland þessa dagana en Tom Cruise. Þannig mátti sjá frægan kappa í miðbæ Keflavíkur í gær en þar var á ferðinni Bam Margera. Kannski er Bam ekki jafn frægur og Cruise en hann er einn af Jackass genginu sem var gríðarlega vinsælt upp úr aldamótunum síðustu. Bam hefur einnig framleitt sýna eigin sjónvarpsþætti og er hann atvinnu hjólabrettakappi. Hann hefur fengist við ýmislegt og ganga mætti jafnvel svo langt að kalla hann ofurhuga enda hefur hann margsinnis stofnað lífi sínu í hættu.
Margera var á röltinu í Keflavík í dag og snæddi m.a. hádegismat á Thai Keflavík. Ekki voru allir sem þekktu kappann en þó einhverjir sem fengu að sitja fyrir á mynd með honum. Ekki er vitað hve lengi hann dvelur hér eða hver tilgangur heimsóknarinnar er.
Á myndinni má sjá Bam Margera hægra megin ásamt adáenda í Gallerí Keflavík.