Ballerínur í Vefsjónvarpi Víkurfrétta
Ballettskóli Bryndísar Einarsdóttur, sem starfað hefur á Íþróttavöllum, íþróttahúsinu á Vallarheiði, frá því í haust, nýtur mikilla vinsælda. Stúlkur á öllum aldri hafa stundað dansnám hjá Bryndísi og framfarinar hafa orðið miklar frá fyrsta tíma. Kvikmyndatölumaður Víkurfrétta fylgdist með ungum ballerínum í glóandi bleikum búningum svífa um ballettsalinn á Vallarheiði, eins og sjá má í meðfylgandi myndbandi í Vefsjónvarpi Víkurfrétta.
Ljósmyndir: Hilmar Bragi Bárðarson