Baldur vanur því að tapa gegn mér
- segir Erik Olaf nýjasti meðlimur Útsvarsliðs Reykjanesbæjar
Reykjanesbær tekur að vanda þátt í Útsvari, spurningakeppni Sjónvarpsins og í kvöld mun liðið etja kappi við lið Fljótsdalshéraðs. Í liðinu eru þau Baldur Guðmundsson og Hulda G. Geirsdóttir sem eru orðin Suðurnesjamönnum að góðu kunn, enda tekið þátt í leiknum í nokkur ár og staðið sig vel. Þriðji og nýjasti liðsmaður Reykjanesbæjar í spurningakeppni sveitarfélagana er svo Erik Olaf Eriksson. Erik er 33 ára Keflvíkingur sem stundar meistaranám í lögfræði við Háskóla Íslands en hann starfar auk þess hjá IGS á Keflavíkurflugvelli. Í fyrra tapaði lið Reykjanesbæjar fyrir grönnum sínum í Grindavík sem endaði svo á því að vinna sjálfa keppnina eins og kunnugt er.
Erik Olaf kemur inn í liðið fyrir Hauk Inga Guðnason sem stóð sig með prýði í fyrra. Það mun væntanlega falla í skaut Eriks að hlaupa í bjölluspurningunum frægu og þar verður líklega erfitt að fylla í skarð hins fótfráa Hauks sem var einn af spretthörðustu knattspynumönnum landsins þegar hann var í boltanum. „Haukur var náttúrlega sneggri en Michael Owen þegar hann var í Liverpool á sínum tíma, þannig að þú getur rétt ímyndað þér,“ sagði Erik í samtali við Víkurfréttir en í kvöld fer sjálf keppnin fram í sjónvarpssal. Erik er óneitanlega nokkuð taugaóstyrkur enda er keppnin í beinni útsendingu í Ríkissjónvarpinu og flestir landsmenn sitja sem fastast við skjáinn.
En hvernig kom það til að þú varst beðinn um að taka þátt? „Ég var úti á Flórída í sumarfríi þegar Björgvin Ívar félagi minn og sonur Baldurs hafði samband við mig í gegnum Facebook og spurði hvort ég vildi vera með í liðinu. Nafn mitt hafði víst komið til tals á einhverjum „fundi“,“ segir Erik. „Ég tók mér smá umhugsunarfrest en ákvað svo að slá til eftir að hafa borið þetta undir fjölskylduna.“
Erik er einn fjölmargra sem lagt hafa leið sína reglulega á öldurhúsið Paddy´s en þar fer fram svokallað Pub Quiz þar sem Suðurnesjamenn spreyta sig á hinum ýmsu spurningum. Lið þeirra Eriks og Baldurs hafa eldað þar grátt silfur saman og berjast iðulega um sigurinn. „Baldur hefur sennilega munað eftir mér eftir að hafa tapað reglulega fyrir Pub Quiz liði mínu á Paddys,“ segir Erik glettinn á svip.
Hvað varðar undirbúning fyrir keppnina þá segir Erik að hann hafi fylgst vel með þeim keppnum sem fram hafa farið í haust og reynt að lesa í það hvað spurningahöfundur gæti mögulega spurt um, það hefur hann svo reynt að leggja á minnið. Þegar blaðamaður falast eftir helstu styrkleikum Eriks í keppninni þá er hann fljótur að svara því. „Dægurmenning og íþróttir er svona þar sem ég er hvað sterkastur. Íslensk landafræði er það sem ég er lakastur í.“
Eins og áður segir þá þekkjast þeir Baldur frá spurningakeppninni á Paddys en þeir félagar hafa verið að hittast og æfa aðeins fyrir keppnina. „Við Baldur höfum hist nokkrum sinnum tveir og æft saman. Við höfum svo bara hist öll saman einu sinni núna fyrr í vikunni.“ Þar var farið yfir leikræna tilburði en Erik býst við því að Baldur muni sjá um leiklistina.
Þátturinn í kvöld hefst klukkan 20:30 á Rúv.