HSS
HSS

Mannlíf

Baldur KE97 lýstur upp á laugardagskvöld
Fimmtudagur 4. september 2003 kl. 16:06

Baldur KE97 lýstur upp á laugardagskvöld

-kominn á þurrt eftir að hafa verið á sjó í 42 ár

Í síðustu viku var vélbáturinn Baldur KE 97 færður á land og komið fyrir í Nausti í Grófinni við smábátahöfnina og var Ólafur Björnsson fyrrverandi útgerðarmaður og fyrsti eigandi bátsins ánægður með að sjá bátnum búið Naust. Það eru mikil viðbrigði fyrir bátinn að komast á þurrt land því hann hefur verið á sjó í 42 ár og í gegnum tíðina verið mikið aflaskip. Baldur KE 97 var fyrsti báturinn frambyggður samkvæmt íslenskum hugmyndum og fyrstur með skuttog á Íslandi. Báturinn verður lýstur upp með viðhöfn á laugardagskvöldið klukkan 21.Ólafur Björnsson hefur síðustu mánuði dyttað að bátnum eins og hann kýs að kalla það, en bátnum var lagt þann 1. mars á þessu ári. Ólafur segir að hann hafi snemma fengið þá flugu í hausinn að láta smíða frambyggðan bát með skuttog. „Ég var stýrimaður á togaranum Júní og Andrés Gunnarsson vélstjóri gerði líkan og tillögur að skuttogara, en á þessum tíma var nýsköpunin í gangi. Það vildi enginn hlusta á hann hér heima, en hann fór farþegi með okkur á Júní til Grimsby. Við gengum frá þessu listaverki á káetuborðinu og ég sat langtímum saman og horfði á þetta listaverk,” segir Ólafur. Báturinn var smíðaður í Svíþjóð og kom til Íslands þann 19. mars 1961 og þá þegar hóf hann veiðar. Baldur var með fyrstu bátunum sem hófu humarveiðar af einhverju marki og segir Ólafur að þær veiðar hafi gengið vel. „Við vorum á snurvoð á sumrin og á línu og netum á veturna. Okkur gekk báta best alla tíð á snurvoðinni.”
Baldur KE var síðustu árin í eigu Nesfisks í Garði en eins og áður segir var honum lagt þann 1. mars sl. eftir að hafa gegnt sínu hlutverki rækilega í 42 ár. Ólafur segir að það hafi verið draumur sinn að geta varðveitt Baldur. „Þegar það kom upp að þeir hjá Nesfiski voru tilbúnir að láta mig fá bátinn þegar þeir hættu að gera hann út þá fór ég og ræddi við bæjarstjórann og spurði hvort bærinn væri tilbúinn að búa honum stað. Bæjarstjóri tók því mjög vel og varð hrifinn af hugmyndinni.”
Ólafur hefur verið að snúast í kringum bátinn frá því í apríl og hafa ýmsir komið að verkinu með honum. Ólafur segir að flutningur bátsins hafi gengið vel þó ýmis vandræði hefðu skotið upp kollinum. Hann þakkar þeim fjölmörgu sem hafa tekið þátt í að leysa þetta verkefni með vinnu og fleiru. Ólafur segist munu kíkja reglulega á bátinn þar sem honum hefur nú verið búinn staður um ókomna tíð.

VF-ljósmynd: Ólafur Björnsson með bátinn í „taumi“ þegar verið var að hífa hann á dráttarvagninn. Ólafur sagðist ætla að fylgja bátnum alla leið.
Bílakjarninn
Bílakjarninn