Mannlíf

Bakar fyrir Barnaspítala Hringsins
Elenora Rós lærir til bakara í Menntaskólanum í Kópavogi. Hún fékk Kitchen Aid hrærivélina í afmælis- og jólagjöf í desember síðastliðnum og var að vonum alveg í skýjunum með gjöfina. VF-mynd/dagnyhulda
Laugardagur 29. apríl 2017 kl. 06:00

Bakar fyrir Barnaspítala Hringsins

- Elenora Rós Georgesdóttir hefur dvalið á Barnaspítala Hringsins og vill gefa til baka - Er í bakaranámi og á sér þann draum að opna sitt eigið bakarí

Það eru sennilega ekki margir unglingar sem fá Kitchen Aid hrærivél að gjöf en þegar bakaraneminn Elenora Rós Georgesdóttir fagnaði 16 ára afmælinu sínu á Þorláksmessu fékk hún slíkan grip frá fjölskyldunni í afmælis- og jólagjöf. „Það var rosalega gaman að fá hrærivélina enda hefur það verið draumurinn lengi að eignast slíka. Það féllu nokkur tár því ég átti ekki von á að fá hrærivél að gjöf fyrr en á brúðkaupsdaginn,“ segir Elenora sem hóf nám í bakaraiðn að loknum 10. bekk á síðasta ári.

Það má segja að áhugi á bakstri sé Elenoru í blóð borinn en mamma hennar, amma og nær öll stórfjölskyldan hefur mikla ástríðu fyrir bakstri og eldamennsku. „Í æsku var ég oft með mömmu að baka kleinur og kanilsnúða og við eigum alltaf til bakkelsi heima. Þannig kviknaði áhuginn þegar ég var lítil með mömmu að baka.“ Elenora á sér þann draum að opna sitt eigið bakarí í framtíðinni og var því ekki í miklum vandræðum með að velja sér nám að loknum 10. bekk. Hún býr í Reykjanesbæ og stundar nám í bakaraiðn við Menntaskólann í Kópavogi. Þangað fer hún á hverjum morgni með rútu og tekur því daginn snemma eins og sönnum bakara sæmir. „Mér finnst alveg æðislegt í náminu. Kennararnir eru frábærir og námsefnið allt svo fjölbreytt og skemmtilegt og hentar mér alveg ótrúlega vel.“ Námið er þannig uppbyggt að Elenora er í skólanum í eitt ár og er síðan á samningi hjá bakaríi í eitt ár, fer svo aftur í skóla í nokkra mánuði og svo aftur á samning. Í heildina er samningurinn fjögur ár. Elenora ólst upp í Heiðarhverfinu í Reykjanesbæ og segir miklar líkur á að Sigurjónsbakarí í Hólmgarði verði fyrir valinu þegar kemur að því að fara á samning síðar á árinu.

Bílakjarninn sumardekk 2024
Bílakjarninn sumardekk 2024

Elenora fæddist með sjúkdóm og hefur því dvalið töluvert á Barnaspítala Hringsins í gegnum tíðina. Hún kveðst  óendanlega þakklát fyrir alla þá hjálp og velvild sem hún hefur fundið frá starfsfólki spítalans og vill gefa til baka. Elenora hefur því ákveðið að baka kökur og selja og láta ágóðann renna til barnaspítalans. Hún byrjaði fyrir nokkrum vikum og ætlar að baka og safna út ágústmánuð. „Þetta hefur gengið ótrúlega vel, eiginlega miklu betur en ég þorði að vona.“ Hægt er að panta kökur í gegnum Facebook-síðuna Le´ Nores Cakes.

[email protected]