Mannlíf

Bæjarstjóri tók ísfötuáskorun
Róbert Ragnarsson fær ískalda gusuna yfir sig.
Þriðjudagur 26. ágúst 2014 kl. 15:21

Bæjarstjóri tók ísfötuáskorun

Róbert Ragnarsson lét vaða og skoraði á þrjá aðra.

Fjölmargir hafa tekið svokallaðri ísfötuáskorun að undanförnu og myndbönd því til sönnunar hafa verið birt á samfélagsmiðlum, aðallega Facebook. Róbert Ragnarsson, bæjarstjóri í Grindavík, er einn þeirra sem létu vaða. Hann skoraði jafnframt á þrjá aðra opinbera starfsmenn til að standa sína plikt innan 24 klukkustunda. 
 
Ísfötuáskorunin er gerð til að vekja athygli á og styrkja MND félagið á Íslandi. 
 
Hér er Róbert, sem nýtur aðstoðar sonar síns, Fróða.  
 

 

Bílakjarninn sumardekk 2024
Bílakjarninn sumardekk 2024