HSS
HSS

Mannlíf

Baða köttinn, svampa kindurnar og vökva jólatréð
Miðvikudagur 22. desember 2010 kl. 13:54

Baða köttinn, svampa kindurnar og vökva jólatréð

Andri Þór Ólafsson býr í Sandgerði og stundar nám við Fjölbrautaskóla Suðurnesja. Hann var markaðsstjóri nemendafélagsins á síðasta skólaári en tók það skrefinu lengra og er nú formaður.
Andri er mikill athafnamaður en hann hélt jólatónleika Baggalúts nú á dögunum í Stapanum og gengu þeir eins og í sögu að sögn Andra.

Bílakjarninn
Bílakjarninn

Fyrstu jólaminningarnar?
Þegar ég hitti Jesús í fyrsta skipti

Jólahefðir hjá þér?
Baða köttinn, svampa kindurnar og vökva jólatréð

Ertu duglegur í eldhúsinu yfir hátíðarnar?
Ég er Jamie Oliver norðursins

Jólamyndin?
Ég næ mér alltaf í rúsínur á aðfangadagsmorgun og horfi á myndina Á tæpasta vaði 2. Þegar ég er í góðu skapi horfi ég einnig á 1, 3 og 4

Jólatónlistin?
Það koma engin jól á mínu heimili nema að ljúfir jólatónar Baggalúts hafi fengið að hljóma óhindrað um hlustirnar frá miðjum september

Hvar verslarðu jólagjafirnar?
Kaskó – Örugglega ódýrt

Gefurðu mikið að jólagjöfum?
Ég gef engar jólagjafir því ég er fátækur námsmaður, eins og segir í laginu… “Allir eru að fá sér”

Ertu vanafastur um jólin?
Ég borða alltaf sama hamborgarhrygginn, ár eftir ár. Ótrúlegt hvað hryggir geymast lengi í frysti. Átti ömurleg jól fyrir 5 árum, helvítis frystikistan bilaði.

Besta jólagjöf sem þú hefur fengið?
Strumparnir 3. Núna á ég allt safnið!

Hvað langar þig í jólagjöf?
Hamingju.

Hvað er í matinn á aðfangadag?
Gamli, góði hamborgarhryggurinn!