Aukning í Sandgerði
Valborg Jónsdóttir hjá Listatorgi í Sandgerði segist hafa orðið vör við mikla aukningu erlendra ferðamanna til Sandgerðis í sumar.
Aðilar í ferðaþjónustu á Suðurnesjum eru á einu máli um að ferðamönnum er að fjölga á Suðurnesjum og hafa sennilega aldrei verið fleiri en í ár. Víkurfréttir höfðu samband við ýmsa aðila í ferðaþjónustunni á Suðurnesjum og spurðust fyrir um hvernig gengi að anna stöðugum straumi ferðamanna sem koma hingað til lands.
Valborg Jónsdóttir hjá Listatorgi í Sandgerði segist hafa orðið vör við mikla aukningu erlendra ferðamanna til Sandgerðis í sumar. Hún ásamt um tug annarra selja handverk og hönnun í Listatorg Gallerý í Sandgerði. Hún sagði að það komi fleiri rútur að heimsækja Fræðasetrið í Sandgerði en meira af því fólki mætti hugsanlega kíkja við í Gallerýið að hennar sögn, enda mikið af fallegum munum þar til sölu og sýnis.