Átján kennarar fengu fjöregg
Haldið var upp á 10 ára afmæli Heiðarskóla í gær og gerðu nemendur og starfsfólk skólans sér ýmislegt til skemmtunar í tilefni dagins. Við þetta tækifæri fengu 18 kennarar skólans afhent fjöregg, sem er fallegur listmunur eftir Koggu. Þessi hópur kennara á það sameiginlegt að hafa starfað við Heiðarskóla frá upphafi þannig að ekki verður það sagt um skólann að honum haldist illa á starfsfólki.
Fjöreggið vakti mikla hrifningu.
VFmynd/elg.