Ástþór Óðinn afkastamikill rappari
Ástþór Óðinn er 29 ára gamall afkastamikill rappari sem er stoltur af uppruna sínum. Hann er harður Njarðvíkingur þrátt fyrir að hann búi í Reykjavík ásamt unnustu sinni Unni Ýr um þessar mundir. Þar starfar hann á frístundarheimilinu Árseli á daginn og á næturna á Elliheimilinu Grund. Hann byrjaði að fikta í tónlist fimmtán ára gamall en um tvítugt gaf hann út sína fyrstu plötu Operation On The Mic. Hann er annar stjórnanda útvarpsþáttarins Velkominn um borð á Rás 3. Ástþóri gekk vel á dögunum í alþjóðlegri lagakeppni á netinu þar sem framlag hans var lag til móður sinnar heitinnar. Ástþór telur að hún muni aldrei hætta að hafa áhrif á sig og muni sennilega birtast meira í tónlistinni sinni á komandi árum. Hann er verðandi faðir og rappari sem vill láta gott af sér leiða.
Rekur eigið hljóðver
On and On er upptökuver í Kópavogi sem ég, hljómsveitin Stjörnuryk og Óskar Long erum að reka. Við höfum verið að aðstoða efnilegt tónlistarfólk ásamt því að taka upp okkar eigin tónlist. Ef einhver er að leita sér að ódýrum upptökum endilega hafa samband www.on&on.is eða á facebook undir on&on.
Reynir að láta gott af sér leiða
Já, það er alltaf að verða meira og meira enda finnst mér það vera skylda hjá listamönnum að láta gott af sér leiða í gegnum listir sínar. Ástþór hefur ásamt fleiri tónlistarmönnum staðið fyrir fjölmörgum tónleikum til styrktar góðum málefnum undanfarin ár t.d styrktartónleikum í samstarfi við Krabbameinsfélag Íslands og fjölmörgum viðburðum sem styrkja góð málefni.
Erfingi á leiðinni
Sjálfsagt á það eftir að hafa áhrif og gefa mér aukinn drifkraft. Heimurinn minn á svo sannarlega eftir að breytast til hins betra. Var einmitt að semja nýtt lag sem ber heitið Unborn Child þannig að strax eru áhrifin farin að sýna sig.
Lærði hjóðupptökur í London
Þetta gaf mér alveg rosalega mikið, ég lærði hvernig þetta gengur fyrir sig í stúdíóum, fékk grunninn hvernig eigi að taka upp hljómsveit og vinna síðan í lögunum, mixa og mastera þau. Síðan varð ég svo lánsamur því ég kynntist tónleikahaldara sem bókaði mig út árið á hinum og þessum stöðum í London þannig að þetta var alveg þvílík upplifun og reynsla í minn banka.
Er eitthvað rapp í gangi á Suðurnesjum?
2Leikmenn eiga náttúrlega sitt sæti, síðan Limited Copy og síðan eru ungir rapparar að koma upp má þar nefna Andra Má og Kára Gunn. Þannig að það er einhver gróska.
Allt frá Bítlunum til Eminem
Það er ansi breiður hópur sem að hefur áhrif á tónlist mína, alveg frá dögum Bítlanna til dagsins í dag. Ef ég á að telja upp nokkra þá er það Outkast, 2pac, Eminem, Bítlarnir, Bob Dylan og síðan heldur listinn áfram og áfram.
Hvernig verða jólin hjá þér í ár?
Ég ætla að njóta jólanna í faðmi unnustunnar og fjölskyldunnar uppi í Skorradal, borða góðan mat, slaka á og glugga í eina góða bók eða svo. Á Þorlákmessu er skötuveisla hjá ömmu minni og afa, þar sem sem fjölskyldan kemur saman og einnig á jóladag. Ég mun svo sennilega skella Christmas Vacation í tækið eins og vanalega. Maður gæti jafnvel verið liðtækur í eldhúsinu þar sem ég er að æfa mig fyrir föðurhlutverkið. Ég væri til í að fá erfingjann í jólagjöf en eitthvað verð ég víst að bíða fram yfir áramótin.