Bílakjarninn hekla
Bílakjarninn hekla

Mannlíf

Ásmundur varð sjóveikur eftir tapið gegn Nígeríu
Laugardagur 23. júní 2018 kl. 12:07

Ásmundur varð sjóveikur eftir tapið gegn Nígeríu

„Ég rétt náði að að græja kótiletturnar í kvöldmat áður en sjóveikin tók sig upp. Satt að segja átti ég ekki von á því en það gerðist samt,“ segir Ásmundur Friðriksson, alþingismaður en hann er nýfarinn í vikutúr á sjó sem kokkur á Bylgju VE. Á bátnum er m.a. sonur hans Friðrik. „Eftir nokkuð mörg ár er ég aftur kominn á sjó. Ég réðst sem kokkur á Bylgju Ve 75 og elda í 12 karla næstu vikuna,“ segir Ásmundur.

Hann greinir frá málinu á Facebook síðu sinni eftir fyrsta túrinn sem var í gær. Þar segir hann: „Róðurinn fór frekar rólega af stað í gær, nema hvað stemningin var lágstemmd eftir leikinn á móti Nígeriu sem fór sérstaklega illa í mig. Þröstur og Ágúst Gísli tóku að sér uppvarkið á meðan nýi kokkurinn fór óvígur í konju. Þeir eiga ævarandi þakkir skildar.
Ég var búinn að hrista sjóveikina af mér í morgun og strákarnir fengu nýja ýsu beint úr trollinu, Gústaf flakaði 10 st. sem fóru beint í gufuofninn og peyjarnir voru mjög sáttir með soðninguna.
Við fengum góð höl í nótt og vorum að taka tæp 2 tonn hér á Vestfjarðamiðum. Glæsilegur þorskur og koli í bland.
Ég kann vel að meta tilbreytinguna og hlakka til næstu daga.“

Bílakjarninn sumardekk 2024
Bílakjarninn sumardekk 2024