Aðventugarðurinn
Aðventugarðurinn

Mannlíf

Ásmundur fékk Lundann
Mánudagur 28. september 2015 kl. 11:30

Ásmundur fékk Lundann

– Kiwanisklúbburinn Keilir veitir Lundann í fjórtánda sinn

Ásmundur Friðriksson, alþingismaður, fékk Lundann frá Kiwanisklúbbnum Keili en Lundinn var nú veittur í fjórtánda sinn. Samhliða Lundakvöldi Kiwanisklúbbsins Keilis er árlega veittur gripur til einstaklings sem hefur látið gott af sér leiða og/eða unnið óeigingert starf í þágu samfélagsins, bæjarbúa og/eða bæjarfélagsins Reykjanesbæjar. Verðlaunagripurinn er uppstoppaður lundi.

Skötumessan að sumri er hugmynd sem fæddist fyrir nokkrum árum og byrjaði í samstarfi Ásmundar Friðrikssonar og Gudjóns Sigurðssonar formanns MND. MND naut góðs af messunni í upphafi og nú er svo komið að yfir fjögurhundruð manns mæta árlega á messuna.

Síðustu fimm árin hafa safnast margar milljónir sem hafa verið útdeilt á fjölmörg verkefni þar sem stuðningur við fatlaða er meginverkefnið.

Það var því við hæfi að forsprakki Skötumessunnar, Ásmundur Friðriksson, fái nafnbótina Lundinn 2015, segir í umsögn Kiwanisklúbbsins Keilis.

„Ég er afar þaklátur Kiwanismönnum í Keili fyrir þessa viðurkenningu til mín. Hún er þakklæti til þeirra allra 400 sem á hverju ári á Skötumessuna í Garði og eru til staðar að afhenda styrkina í lok hvers kvölds og eru þannig virkir þátttakendur í verkefninu alla leið. Ég er ekki einn, heiðurinn eiga Sigríður Magnúsdóttir konan mín sem alltaf stendur við bakið á mér sama hvað ég tek mér fyrir hendur. Theodór Guðbergsson og Jóna Halla Hallsdóttir, Þórarinn Guðbergsson og Ingunn Pálsdóttir, Guðlaugur Helgi Sigurjónsson, Axel Jónsson, Guðjón Sigurðsson, Hafsteinn Guðnason, Fiskmarkaður Suðurnesja, H. Pétursson ehf, Skólamatur og fleiri og fleiri.

Ég er fullur þakklætis að vera komin í hóp 14 frábærra einstaklinga sem hver á sinn hátt hefur lagt samfélaginu í Reykjanesbæ og Suðurnesjum til óeigingjarnt starf í þágu samfélagsins. Ég er þakklátur fyrir að hafa fengið annað tækifæri í lífinu og vil sýna samfélaginu þakklæti fyrir það, ég er þakklátur þeim sem leggja mér lið til að hjálpa öðrum,“ segir Ásmundur Friðriksson á fésbókarsíðu sinni þar sem hann þakkar fyrir útnefningu Kiwanismanna í Keili.

Jólalukka VF 2024
Jólalukka VF 2024