Aðventugarðurinn
Aðventugarðurinn

Mannlíf

Áskoranir stjúpfjölskyldna - erindi í kvöld
Þriðjudagur 21. maí 2013 kl. 13:20

Áskoranir stjúpfjölskyldna - erindi í kvöld

Í kvöld, þriðjudagskvöld, munu FFGÍR og Suðurnesjavaktin standa fyrir erindi um áskoranir stjúpfjölskyldna. Erindið fer fram í sal Fjölbrautaskóla Suðurnesja og hefst klukkan 20.00.

Valgerður Halldórsdóttir félagsráðgjafi mun koma og halda erindi um helstu áskoranir stjúpfjölskyldna sem eru í raun þær sömu og í öðrum fjölskyldum en að auki þurfa bæði börn og fullorðnir að takast á við ný verkefni og aðstæður sem geta reynt á.

Þegar skortir upplýsingar um við hverju er að búast og viðurkenningu samfélagsins reynir hver og einn að fóta sig eftir bestu getu og óuppbyggilegar lausnir vilja oft verða til. Í erindinu mun Valgerður fjalla um það hvernig takast megi á við þessar áskoranir á uppbyggilegan hátt.

Valgerður er félagsráðgjafi, MA og formaður Félags stjúpfjölskyldna og ritstýrir einnig vefsíðunni stjuptengsl.is. Hún hefur haldið fjölmörg erindi sem tengjast stjúptengslum, foreldrasamvinnu, og umgengni eftir skilnað m.a. fyrir skóla, foreldrafélög, félagasamtök, og kirkjuna.

Allir velkomnir.
 

Jólalukka VF 2024
Jólalukka VF 2024