Ásgeir Trausti opnar Keflavik Music Festival
Ein stærsta tónlistarhátíð ársins hefst í Reykjanesbæ á morgun þegar Keflavik Music Festival fer af stað. Talsverð eftirvænting er fyrir hátíðinni í ár enda koma nokkrir heimsþekktir tónlistarmenn fram á hátíðinni. Að auki munu margir af vinsælustu tónlistarmönnum landsins koma fram í Reykjanesbæ um helgina.
Víkurfréttir litu við í Reykjaneshöll í dag þar sem verið var að undirbúa hátíðina. Búið er að koma fyrir risasviðið í knattspyrnuhöllinni sem mun þjóna öðrum tilgangi um helgina. Búist er við þúsundum gesta á hátíðina.
„Við reiknum með að fá nokkur þúsund manns hingað í Reykjaneshöllina og auðvitað enn fleiri á alla viðburðina á hátíðinni. Við viljum festa hátíðina í sessi með því að gera þetta eins stórt og mögulegt er. Við fáum einnig sérbeiðnir frá listamönnunum sem eru að koma fram og þá er erfitt að gera þetta öðruvísi en tjalda til öllum þeim búnaði sem er fáanlegur hér á landi,“ segir Ólafur Geir Jónsson sem stýrir hátíðinni ásamt Pálma Erni Erlingssyni.
Ásgeir Trausti ríður á vaðið og er fyrsta atriðið á hátíðinni í ár. Hann hefur leik kl. 19:00 í Reykjaneshöllinni annað kvöld. Outlandish fylgir eftir í kjölfarið og svo stígur á stokk ástralska sveitin Temper Trap sem hefur notið vinsælda víða um heim undanfarin ár.
Dagskrána á hátíðina í heild sinni má sjá hér að neðan: