Bygg
Bygg

Mannlíf

Arngunnur Ýr með ný verk í Listasafni Reykjanesbæjar
Miðvikudagur 22. október 2008 kl. 09:48

Arngunnur Ýr með ný verk í Listasafni Reykjanesbæjar



Listasafn Reykjanesbæjar opnar á morgun sýningu á nýjum verkum Arngunnar Ýrar í og ber sýningin heitið Upphafið.
Arngunnur Ýr stundaði nám í  Myndlista- og handíðaskóla Íslands og lauk prófum frá San Francisco Art Institute og Mills College í Bandaríkjunum. Arngunnur hefur sýnt víða og er löngu orðin þekkt fyrir náttúrumyndir sínar, sem margir vilja kalla „himneskar“.

„ Í seinni tíð hafa málverk Arngunnar Ýrar fengið á sig æ frumspekilegra yfirbragð. Þær sýna landslag sem er í mótun og upplausn í senn og vekur því með okkur tilfinningar sem sveiflast á milli aðdáunar á þeirri endurnýjun sem stöðugt á sér stað í skauti náttúrunnar og ótta yfir eyðingarmætti hennar,” skrifar Aðalsteinn Ingólfsson í sýningarskrá sem gefin er út af þess tilefni. 

Sýningin stendur til 7. desember. Sýningarsalur Listasafns Reykjanesbæjar í Duushúsum er opinn alla daga frá kl. 11.00 til kl. 17.00 og aðgangur er ókeypis.


VFmynd/elg: Arngunnur Ýr og starfsmenn Duushúsa unnu að uppsetningu sýningarinnar í gær.

Bílakjarninn
Bílakjarninn