Fimmtudagur 22. janúar 2015 kl. 09:05
Arnar Helgi sýnir á sér nýja hlið
- mundar trommukjuða í nýju myndbandi.
Keflvíkingurinn Arnar Helgi Lárusson, íþróttakappinn mikli og formaður SEM, gerir sér lítið fyrir og fer í hlutverk trommuleikara í hljómsveit íþróttafólks sem sett var saman fyrir nýjustu Lottó-auglýsinguna. Um er að ræða myndband sem vakið hefur mikla athygli.