Arnar Dór með tónleika í Hljómahöll
Söngvarinn Arnar Dór Hannesson heldur tónleika í Hljómahöll 11. maí næstkomandi. Arnar Dór ólst upp í Keflavík og hefur lengi stefnt að því að halda tónleika í Hljómahöll og nú er að koma að því. Tónleikarnir bera yfirskriftina „Hittumst í draumi“ eftir nýjasta lagi Arnars sem kemur út í vor og verður meðal þeirra laga sem verða flutt á tónleikunum.
Arnar Dór átti góðu gengi að fagna í sjónvarpþættinum The Voice Ísland í vetur þar sem hann endaði í 2. sæti. Arnar Dór lærði söng í Tónlistarskóla FÍH og við tónlistarskólann Hjartans mál. Hann hefur sungið með kór Lindakirkju í mörg ár undir stjórn Óskars Einarssonar og hafa þeir unnið mikið saman. Hann hefur tvivegis sungið á stórtónleikunum Með blik í auga í Reykjanesbæ og einnig verið í hljómsveitinni Famina Futura. Þá hefur hann komið fram á fjölmörgum skemmtunum, tónleikum, árshátíðum og brúðkaupum um land allt síðustu ár.