Árlegir forskólatónleikar í Akurskóla
Lúðra- og strengjasveit Tónlistarskóla Reykjanesbæjar.
Lúðra- og strengjasveit Tónlistarskóla Reykjanesbæjar héldu nýverið árlega tónleika ásamt nemendum í 2. bekk í Akurskóla. Nemendur í 2. bekk spiluðu á blokkflautu og sungu nokkur lög. Að sögn umsjónarfólks stóð hópurinn sig mjög vel og var flottur á sviðinu. Nemendur í 1.-3. bekk fylgdust með ásamt nokkrum foreldrum.
Meðfylgjandi myndir voru teknar við þetta tilefni og eru fengnar af vefsíðu Akurskóla.