Árásin á Goðafoss á Byggðasafninu á Garðskaga á morgun
Laugardaginn 4. júní nk. kl. 14:00 verður opnuð sýning á myndinni Árásin á Goðafoss á Byggðasafninu á Garðskaga sem gerð var eftir handriti Jóns Ársæls Þórðarsonar og Þórs Whitehead í leikstjórn Björns B. Björnssonar. Þór Whitehead verður með frásögn um slysið og stöðu Garðskagans í stríðinu en þar reistu Bretar fyrsta flugvöll sinn á Íslandi og miðunarstöð. Á svæðinu við flugvöllinn nálægt Hólavöllum er nú verið að graf upp skotgrafir sem voru til varnar flugvellinum en í ár eru 70 ár liðin frá komu Breta á Garðskaga.
Jón Ársæll og Björn B. Björnsson mun segja frá gerða myndarinnar en 10. nóvember 1944 er enn mörgum eldri Garðmönnum og Sandgerðingum í fersku minni. Fjöldi manns sá þegar Goðafoss varð fyrir tundurskeytinu frá kafbátnum U-300 og skipið lyftist í sjónum og miklar drunur fylgdu í kjölfarið. Í árásinni fórust 42 sem voru um borð í Goðafossi, þar af 24 sem voru í skipinu áður en það bjargaði sjómönnum af breska olíuskipinu Shirvan skömmu fyrir árásina.
Að loknum frásögnum þeirra verður myndin sýnd og gestum gefst kostur á að ræða við þá félaga.
Til gamans fyrir íbúa í Garði þá eiga þeir Jón Ársæll og Björn báðir ættir sínar að rekja í Garðinn. Jón Ársæll er ættaður frá Meiðastöðum og Björn er ættaður úr Leiru.
Á veitingastaðnum Tveir vitar verður boðið upp á veitingar, kaffi og meðlæti.