Áramótin mynduð frá Pósthússtræti
Við Pósthússtræti í Reykjanesbæ standa tvö sjö hæða háhýsi og þar er gott útsýni yfir Reykjanesbæ. Einar Guðberg er mikill áhugaljósmyndari og býr á efstu hæð við Pósthússtrætið. Hann mundaði myndavélina þegar nýtt ár gekk í garð og meðfylgjandi myndir voru teknar yfir Keflavík á miðnætti á gamlárskvöld.