Mannlíf

Áramótastemmning við risabrennu í Garði
Föstudagur 1. janúar 2010 kl. 16:50

Áramótastemmning við risabrennu í Garði

Það skapaðist mikil og góð áramótastemmning við brennuna í Garði í gærkvöldi. Þar höfðu félagar í Björgunarsveitinni Ægi hlaðið risabrennu, örugglega þá stærstu á Suðurnesjum í ár.
Kveikt var í brennunni í algjöru logni, sem er fátítt í Garðinum, og stóðu logarnir langt til himins. Þá var það mál manna að efni brennunnar væri það hreint að varla var hægt að merkja reyk frá brennunni.

Optical Studio - 5. sept
Optical Studio - 5. sept


Mikill fjöldi gesta var við brennuna og m.a. mátti sjá þar mörg andlit úr Reykjanesbæ, enda engin brenna í Reykjanesbæ um áramótin.


Lokapunkturinn yfir áramótabrennuna í Garði var síðan glæsileg flugeldasýning Sveitarfélagsins Garðis, sem sýndi með sýningunni að Garðmenn eru stórhuga.

Víkurfréttamyndir: Hilmar Bragi Bárðarson

Stórhuga Garðmenn með flotta flugeldasýningu.

Frá flugeldasýningunni.

Björgunarsveitin Ægir í Garði sér um áramótabrennuna sem var sérstaklega stór þetta árið...


... og brennan brann einstaklega glæsilega. Logarnir beint til himins!

Bílakjarninn
Bílakjarninn