Þriðjudagur 31. desember 2013 kl. 07:10
Áramótabrenna í Grindavík kl. 20:30
Hin árlega áramótabrenna á vegum Grindavíkurbæjar og Björgunarsveitarinnar Þorbjarnar verður í Bót í dag, gamlársdag, kl. 20:30. Veðurspáin er nokkuð hagstæð og því upplagt fyrir Grindvíkinga að fjölmenna í Bótina. Mætum öll og kveðjum árið á viðeigandi hátt, segir í tilkynningu frá Grindavíkurbæ.